Auglýsing

Fermingin hennar Grétu Bjargar

England here I come

Leikur dagsins

Á morgun!!!

04. apríl 2008 klukkan 18:49
Jæja, þá fer að líða að heimkomu☺ Legg af stað á morgun með leigubíl á Hove Station og tek þaðan lest til London Victoria og leigubíl þaðan á Heathrow.
Ég viktaði töskurnar mínar í morgun, minni taskan vó 10 kg og sú stærri 25 kg! svo fyrir utan það er ég með handfarangur í lítilli flugfreyjutösku! Veit ekki alveg hvernig ég ætla að tækla þessa lestarferð:S en það hlýtur að reddast.



mynd af töskunum mínum - á myndina vantar samt handfarangurinn minn:S

kv. Ferða Helga

9 dagar!

27. mars 2008 klukkan 11:07
ohhh mér leiðst að blogga!!!

Seinustu helgi fór ég til London:) Fór og gisti hjá Öddu, við fórum svo og hittum Dísu og Helenu inni í London og fengum okkur að borða. Dagin eftir fórum við svo að versla í Kingston og djömmuðum þar ásamt Evu um kvöldið. S.s. mjög skemmtileg helgi.

en útaf ákveðnum málum (sem ég ætla ekki að útskýra hér) þá hefur verið ákveðið að ég sé alkomin heim núna í apríl.

fyrir utan þetta er svosum ekkert nýtt að frétta af mér... en ykkur?

London Baby!

03. mars 2008 klukkan 17:49

London var æði! Ég skemmti mér allavega rosalega vel.

Ferðin hófst hjá mér þegar ég fór með strædó á lestarstöðina, sú strædó ferð tók alltof langan tíma (miðað við það sem áætlunin segir). Þannig að þegar ég kem inná lestarstöðina eru 5 min þangað til lestin á að leggja af stað. Ég hendist í röðina og kaupi miða fram og til baka, hleyp svo út á pall, og rétt næ að stökkva í lestina eftir að það er búið að flauta. Ég hefði ekki matt vera mínútu seinni. Lestarferðin gekk bara vel, fékk sæti og sat þar þangað til ég þurfti að skipa um lest. Adda kom svo og sótti mig á lestarstöðina.


Um kvöldið horfðum við svo á Run Fat boy Run, og átum heimsins bestu pizzu. Eftir myndina fórum við inní herbergi og sátum þar á spjalli til 3 um nótt, ótrúlegt hvað við náðum vel saman svona við fyrstu kynni.


Á laugardeginum vöknuðum við svo aðeins seinna en við ætluðum okkur og skelltum okkur í Kingston að kíkja í búðirnar. Þar byrjuðum við á því að fara á Tony Roma’s og átum þar á okkur gat, kíktum svo í 3 búðir og flýttum okkur heim. Þar sem við þurftum að ná lestinni um 5 þá flýttum við okkur í sturtu og að stetja upp andlitin, svo á slaginu 5 mætti leigubíllinn fyrir utan. Leigubílstjórinn tjáði okkur það að það væru engar lestaferðir frá lestarstöðinni svo við þurftum að fara með bílnum yfir á þarnæstu stöð.


Þorrablótið var fínasta skemmtun, byrjuðum á að fá fordrykk, og bíða. Rosalega eru Íslendingar seinir! Dagskránni var seinkað um heilan klukkutíma. Við fengum sæti aftast, þar sem flest borðin voru frátekin fyrir hina ýmsu hópa. Maturinn var ágætur, ég meira segja gerðist svo djörf og smakkaði súra hrútspunga og hákarlsbita. Pungurinn var ógeð, segi ekki annað en hákarlinn var ekki jafn slæmur og ég bjóst við, svo var þessu að sjálfsögðu skolað niður með íslensku brennivíni. Veislustjórar blótsins voru þau Halla (úr x-factor) og Ásgeir Kolbeins. Aumingja þau, hljóðkerfið var mjög skringilega sett upp, og það voru engir hátalarar aftast, svo fólk sem sat fyrir aftan miðjan salinn heyrði mjög takmarkað í þeim. Eftir matinn tóku svo við Jagúar, sem áttu að spila fyrir dansi, og hefðu gert það bara nokkuð vel hefði fólk dansað.

Við skelltum okkur svo bara með leigubíl heim eftir blótið.


Á sunnudeginum, eftir að hafa sofið til hádegis fórum við í gönguferð (þar sem strædóinn í Molesey gengur ekki á sunnudögum) meðfram ánni Thames. Ætluðum að skoða höllina í Molesey en þegar við komum sáum við að það kostaði 13.5 pund inn, svo við hættum við. Ákváðum að fara heldur á pizza express og fá okkur þynkumat. Löbbuðum svo aftur heim.


Þegar við komum svo á lestarstöðina þá komust við að því að það voru engar lestir þann daginn heldur svo við þurftum að taka rútu á lestarstöð inni í London, það ferðalag gekk bara vel, svo héldum við Helena í sitthvora áttina. Ég í lest til Brighton og hún í lest inní London til að taka rútu til Bristol.


Þegar ég svo loksins kom heim eftir allar rútu og lestarferðarnar var ég orðin svo þreytt að ég smellti mér beint uppí rúm☺


En mér fannst þetta frábær ferð og vil bara þakka þeim Helenu og Öddu fyrir skemmtilega helgi.


Kv. Helga Kristrún Londonfari

Ps. Ég tók rosa fáar myndir, en Helena var með myndavél þanngi að ég vona að hún setji inn sínar myndir.

 

Klipping!

25. febrúar 2008 klukkan 17:09
Ég eeeelska að fara í klippingu!

svona var ég áður:



svo fór ég í klippingu hjá honum Paul á Rush, sem er mega hommi:P

og þegar ég labbaði út var meiri hlutinn af hárinu fokinn af og ég varð svona:



hvernig finnst svo fólki?

ps. fleiri myndir á myndasíðunni minni

kaupóð

18. febrúar 2008 klukkan 15:54

ég keypri mér kjól:)


og skó


fyrir Þorrablótið sem verður haldið í London 1. mars:)

Gleðilegan pönnukökudag:)

05. febrúar 2008 klukkan 18:44
(update)Ég er búin að smella inn 3 nýjum albúmum inná myndasíðuna mína

Í dag fór ég að sækja stelpurnar, Úlfhildur var búin kl 15.15 en Dýrleif 16.00, svo að við Úlfhildur skelltum okkur í smá stund í ballpit. Einmitt þegar við ákveðum að fara af stað að sækja Dýrleifu byrjar þessi svakalega rigning. Við erum ekkert að tala um svona íslenska rigningu, neeiihei! Hér eru droparnir helmingi stærri og þéttari, og rigningin fer beint niður en ekki í allar áttir. En til að gera langa sögu stutta, rigndi allan tíman meðan ég labbaði uppí skóla til Dýrleifar og alla leiðina heim, leið og þangað var komið hætti að rigna. Just my luck!


Annars hef ég það bara mjög fínt. Er búin að hitta eina af íslensku stelpunum sem leynast hér á Englandi. Eftir að Sara setti upp blogsíðuna, þá hefur “rignt” yfir mig skilaboðum frá stelpum víðsvegar um England☺.
Ég hitti eina þeirra á laugardaginn, hún kom til mín og gisti hjá mér. Við forum svo um kvöldið út að borða og á pöbbarölt. Það var mjög gaman og ekki næstum eins vandræðalegt og ég bjóst við. Svo veit ég um eina sem er að koma hignað til Brighton næstu helgi, þannig að ég ætla að hafa samband við hana þegar hún kemur og setja upp nýtt deit:P

Ljósmyndanámsskeiði gengur líka bara mjög vel. Í seinasta tíma vorum við send út á götur bæjarins að taka myndir af fólki. Við s.s. þurftum að labba upp að fólki og biðja um leyfi til að taka myndir af þeim, sem var mjög erfitt til að byrja með en lagaðist svo með hverri manneskjunni sem ég spurði☺. Kom mér líka svolítið að óvart hvað fólk var viljugt að láta taka myndir af sér, ég spurði um 20-21 manns og tók myndir af 17 þeirra!

kv. Helga Kristrún

London

20. janúar 2008 klukkan 20:58
London er öðruvísi. Fólk keyrir líka öfugumegin á götunni en það er samt öðru vísi. Mér fannst vera mikið af fólki í miðbæ Brighton þegar ég fór þangað einn laugardag, en vá í London eru miklu fleiri. Til þess að geta séð fyrir sér fjöldan, ímyndið ykkur þá allt fólkið sem býr á Íslandi saman komið á laugarveginn. Þá fáiði betri hugmynd um allan fjöldan af fólki sem labbaði framhjá mér á Oxford street.

Í dag er ég búin að sitja í lest í 5 tíma, og skoða pínulítið brot af London. Ég ákvað líka að  vera smá artí og fór á National Portrait Museum og þar á sýningu undir nafninu PopArtPortraits. Það var mjög gaman. Ég keypti ekki neitt, nema eitt par af hnéháum sokkum og regnhlíf.

kv. Helga Artí

Já sæll

17. janúar 2008 klukkan 23:03
Umferðarmenning í Bretlandi er allt öðruvísi en á litla Íslandi. Fyrir það fyrsta þá keyra Bretar “öfugumegin” á götunni en fyrir utan það þá hagar Bretinn sér öðruvísi. Hér gefa allir sénsa og hleypa í gegn, flestir keyra nokkurn vegin á hámarkshraða og hegða sér almennt vel í umferðinni. Þessu hef ég tekið eftir á mínum fjölgandi strædó rúntum. Já þið lásuð rétt, ég eins og ég þoli ekki strætó á Íslandi, ferðast allar mínar ferðir í strætó. Það er reyndar mun þæginlegra hér heldur en á Íslandi, þar sem strætóarnir mínir ganga nokkuð reglulega frá þar sem ég bý og niðrí bæ svo ég lendi ekki oft í því að bíða eftir strætó.

Annars er ekki mikið að frétta af mér. Ég er búin að fara einn dag sem sjálfboðaliði í leikskólann hennar Úlfhildar og ætla að áfram næstu þriðjudaga. Það var mjög gaman að prófa það, allt öðruvísi en t.d. Barnaskólinn. Ég er líka búin að fara í tvo tíma í ljósmyndnámskeiðinu. Fyrsta heimaverkefnið sem við fengum voru sjálfsmyndir (þið getið skoðað þær hér). Verkefni vikunnar er að labba 50 skref stoppa þar og taka mynd, labba svo önnur 50 skref og stoppa og taka mynd þangað til að komnar eru 36 myndir. Við megum líka taka myndir úr strætó ef við viljum spara okkur sporin og ef við sjáum ekkert skemmtilegt myndefni strax gildir 10 sek reglan (sem virka þannig að þú þarft að taka mynd innan 10 sek). Myndavélin þarf að vera stillt á manual, svo að við þurfum að slá inn allar stillingar sjálf.

Endilega kommentið líka við myndirnar á myndasíðunni minni☺

Helga Kristrún

nýtt!

08. janúar 2008 klukkan 00:20
Nýtt símanúmer: 0044 7527 813708
"ný" myndasíða: http://picasaweb.google.co.uk/bluemaster20/
nýtt að frétta: skoðaði höll í dag! heví flott!
nýtt heimilisfang: sendið mér skilaboð á myspace /facebook /msn/sms og ég sendi til baka
nýtt skype: bluemaster20 (allir að hringja frítt í miiig)
Ný myndavél heví töff
myndavél

Bretland

04. janúar 2008 klukkan 21:58
Jæja, þá er maður lentur á Bretlandi, og komin til Brighton. Ferðalagið gekk bara vel fyrir sig, leiddist að vísu svolítið í fluginu en það slapp fyrir horn. Húsið er fínt, herbergið er flott. Famelían er fína, stelpurnar að vísu svolítið feimnar við mig og með smá gestastæla. Á morgun kemur svo Sunneva (aupairin sem var hjá þeim á undan mér) og ætlar að vera með mér í viku, og sýna mér aðeins um hverfið og kenna mér á strætó og svoleiðs.

fleiri fréttir koma svo þegar ég er búin að kaupa myndavélina:)

kv. Helga í Bretlandi

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan